|
Steinbítur (Anarhichas lupus) |
- Steinbítur er veiddur af togurum og línubátum í Norður Atlantshafi í kringum Ísland
- Gerð vöru: Aðskilin flök og hraðfrystar lendur og hlutar
- Veiðitímabil: Allt árið um kring
- Veiðisvæði: FAO 27
|
Heimkynni steinbíts eru í Norðausturur-Atlantshafi frá Svalbarða suður í Biskajaflóa. Þá er hann við Austur- og Vestur-Grænland, við austurströnd Norður-Ameríku frá Labrador suður til Þorskhöfða og jafnvel Nýju-Jersey. Steinbítur er allt í kringum Ísland einkum við Vestfirði en einnig er hann býsna algengur víða fyrir austan land og sums staðar við Suðvestur- og Suðurland. Undan Norður-, Norðaustur- og Austurlandi er mikið um smáan steinbít. Steinbíturinn lifir allt frá nokkurra metra dýpi niður á 400-500 metra dýpi. Hann er algengastur á 40-180 metrum. Steinbíturinn er botnfiskur sem heldur sig mest á leir- eða sandbotni en einnig á hörðum botni.
|

|
|